Brátt kemur hin blíða tíð jólanna og þá ætla félagar í Karlakór Akureyrar-Geysi að leggja sitt af mörkum og efna
til jólatónleika á aðventu.
Á tónleikunum verða jólasöngvar úr ýmsum
áttum, bæði innlendir og erlendir. Rólegir og hátíðlegir söngvar, en einnig léttir og fjörugir.
Jólatónleikar í Akureyrarkirkju eru ákaflega hátíðleg stund. Tónleikar Karlakórs Akureyrar-Geysis í kirkjunni fyrir
síðustu jól tókust sérlega vel, fullt hús og mikil stemmning. Engin ástæða er til annars en að ætla að það sama
verði uppi á teningnum í þetta sinn.
Stjórandi kórsins er Hjörleifur Örn Jónsson og meðleikari Risto Laur. Á tónleikunum kemur fram fjöldi einsöngvara og með futningi
sínum vill þessi samstillti hópur skapa aðventu- og jólastemmningu eins og hún best getur orðið.
Karlakór Akureyrar-Geysir
KAG kvartettinn
Þórólfur Ingvarsson, einsöngur
Magnús Hilmar Felixson, einsöngur
Jónas Þór Jónasson, einsöngur
Ari Erlingur Arason, einsöngur
Gísli Rúnar Víðisson, einsöngur
Birgir Björnsson, einsöngur
Þorkell Pálsson, einsöngur
Rannveig Elíasdóttir, einsöngur
Rósa María Stefánsdóttir, einsöngur
Tónleikarnir verða fimmtudaginn 11. desember og hefjast kl. 20:00. Aðgangseyrir
er 3.000 krónur.