Eins og mörg undanfarin ár, tók KAG lagið fyrir gesti Sjómannadagsins á Akureyri. Fjöldi gesta hlýddi á kórinn taka lagið
á Torfunefsbryggju, þar sem fram fór skemmtun í tilefni dagsins. KAG var þarna í góðum félagsskap, en meðal þeirra sem
tóku lagið voru Yfirliðsbræðurnir Örn og Óskar og Þorvaldur Halldórsson og Helena Eyjólfsdóttir.