Fréttir

Karlakór Akureyrar-Geysir flaug til Ítalíu(Calabria) 7.október 2024

Dagana 7. - 17. október 2024 dvaldi KAG á Suður Ítalíu/Calabria. Flogið var beint frá Akureyri og lent á Lamezia Terme, í næsta nágrenni við Hótel-garðinn þar sem hópurinn dvaldi allan tímann. Makar og velunnarar voru með í ferðinni - en Heimsferðir önnuðust ferðina og fararstjórn á Ítalíu.