28.02.2010
Hæ Tröllum er rétt handan við hornið. Rétt þrjár vikur í þessa miklu skemmtun okkar KAG-manna. Karlakór Selfoss varð að
hætta við þátttöku en Hreimur á Húsavík var ekkert að láta ganga eftir sér. Þeir voru einfaldlega strax til í að
fylla skarðið, enda hafa þeir áður tekið þátt og vita að það verður gaman.
08.02.2010
Það var heldur betur óhefðbundin æfing hjá KAG í kvöld. Í stað þess að æfa söng, eins og venjulega, fengum við
tíma í raddþjálfun hjá Heimi B. Ingimarssyni, söngvara (2. bassa KAG) og CVT raddþjálfara.
30.01.2010
KAG hefur annað hvert ár staðið fyrir kóramóti, sem nefnist "Hæ. Tröllum". Nú verður það haldið þann 20. mars.
Þátttökukórar að þessu sinni verða bræður okkar í Karlakór Eyjafjarðar, Karlakór Bólstaðarhlíðar og
Karlakór Selfoss. Gegn um tíðina hefur verið reynt að fá góðan þverskurð af íslenskum karlakórum á hvert mót og hefur
það tekist vel að þessu sinni. Litlir og stórir að norðan og sunnan.
30.01.2010
Davíð Stefánsson, skáld frá Fagraskógi, var fæddur 21. janúar 1895 og er 115 ára afmæli
skáldsins því minnst í ár. Á sjálfan afmælisdaginn var vegleg dagskrá í Ketilhúsinu á Akureyri þar sem
fram komu ýmsir listamenn. Þar á meðal Karlakór Akureyrar-Geysir. Verk Davíðs Stefánssonar eru stór hluti af viðfangsefnum KAG og
ekkert starfsár kórsins er án laga við ljóð Davíðs.
20.01.2010
Tveir KAG-félagar náðu merkum áfanga í lífinu á dögunum og fylltu marga tugi, 140 samtals! Séra Gunnlaugur fagnaði sextugsafmæli
sínu og Ingvi Rafn varð áttræður. Fyrir báða þessa heiðursmenn var að sjálfsögðu sungið!
14.01.2010
Undanfarið hafa nokkrir laghentir KAG-félagar unnið að miklum endurbótum í „suðurstofunni“ í Lóni og skjalageymslu
kórsins. Hent var út gömlu gólfteppi og gólfin lögð fíneríis eikarparketi í staðinn. Þá var
allt málað hátt og lágt og nýjar innréttingar keyptar í skjalageymsluna. Skemmst er frá því að segja að munurinn er
mikill!