20.11.2013
Hátíðlegir og fallegir jólatónleikar í Akureyrarkirkju á miðri aðventunni, fimmtudaginn 12. desember. Flutt verða jólalög eftir
akureyrska tónskáldið Birgi Helgason, auk fjölda annarra innlendra og erlendara jólalaga.
08.10.2013
Laugardaginn 12. október, halda Karlakór Kjalnesinga og Karlakór Akureyrar-Geysir tónleika í menningarhúsinu Miðgarði, Skagafirði.
26.09.2013
Þó enn sé september þá eru félagar í KAG farnir að æfa jólalögin. Enda stórt verkefni í vændum á
aðventunni.
15.09.2013
Þá eru félagar í Karlakór Akureyrar-Geysi lagðir af
stað í enn einn söngveturinn. Kórfélagar komu saman á fundi í Lóni, þriðjudagskvöldið 10. september, til að stilla saman
strengi og ákveða starfið til áramóta.
31.07.2013
Um miðjan júlí réðust karlakórsfélagar í það mikla verkefni að mála félagsheimilið Lón að utan.
Húsið var mikið farið að láta á sjá og kominn tími til að mála.
22.04.2013
Uppselt var á vortónleika KAG í Hofi í gær. Að þessu sinni var sungið í Hömrum, minni samkomusal Hofs. Kórinn fékk mjög
góðar móttökur og ekki annað að heyra en tónleikagestir hafi skemmt sér hið besta.
28.03.2013
Á vortónleikum Karlakórs Akureyrar-Geysis, sunnudaginn 21. apríl, einblína kórfélagar á tímabilið 1930 - 1950. Horft verður
jafnt til erlendra og innlendra tónskálda og víst er að söngdagskráin verður fjölbreytt!
22.03.2013
Karlakór Akureyrar-Geysir
söng í Mottuboði Klúbbs matreiðslumeistara á Norðurlandi, sem haldið var í Hofi fimmtudagskvöldið 21. mars.
13.03.2013
Árshátíð KAG var haldin í Lóni, laugardaginn 9. mars, og heppnaðist sérlega vel! Mætingin í ár var með allra besta
móti.
24.02.2013
Það var mikill kraftur í KAG-köllum um helgina, en þá tóku menn sig til og máluðu Lón að innan, hátt og lágt! Á
föstudag var allt rifið af veggjum og lofti og máling undirbúin. Á laugardag voru báðar hæðir grunnmálaðar og rúmlega
það og á sunnudag var farin seinni umferð á alla veggi og verkið klárað!